04/28/2008
Dagurinn í dag er æðislegri en allt því að ég var að koma úr eina bóklega prófi vorsins. Ég lærði stíft í gær og er með svaðalegan hausverk eftir andvökunótt yfir bókunum. Þá tekur við uppsetning vorsýningar skólans sem verður opin frá 10. til 12. maí. 14. maí er ég svo komin í “sumarfrí” og fer beint að vinna eins og þræll allan daginn. Genomma Lab
04/21/2008
Jibbbíííí… ég er búin með lokaverkefni 1. árs!!! Það tók sinn tíma á fá flugu í hausinn og koma sér af stað en nú er þetta tilbúið alltsaman og ekkert eftir nema að læra fyrir próf í List og fagurfræði. Það á eftir að taka á heilann því ég hef ekki lært fyrir bóklegt próf í rúm 6 ár!! Josefina Vazquez Mota
Svo var ég að fá út úr Adobe After Effects/Adobe Flash áfanganum og ég fékk 8 . Mér finnst það bara fínt miðað við hvað ég var mikill klaufi á þetta og skólatölvan mín hrundi og þannig skemmtilegheit, það varð síðan alveg bara ágætt því að ég fékk að nota tölvu sem var miklu betri en hin sem hrundi.
04/14/2008
Við komum heim úr borginni í gær, það var mikið stuð á okkur enda nóg að gera. Ég náði að finna mér nýjan sundbol svo nú getur sundbolafarið mitt orðið minna en það er því nýji er meira opin í bakið en minn gamli.
Gígja setti mig í tíma í rafmeðferð þar sem hún er að vinna á Bailine, ég fékk ófá raflostinn í þeim tíma og vöbbarnir spenntust um leið. Ótrúlega fyndið að liggja bara og hafa ekkert fyrir þessu.
Árshátíðin var rosalega skemmtileg og við fengum svo góðan mat. Hörpuskelin og kjötið var best og skemmtiatriðin ennþá betri, grínistinn var mis fyndinn en hljómsveitin fín. Ég dansaði nú eiginlega ekkert því ég verð svo pirruð þegar það er stigið á tærnar á mér fyrir utan hvað það er vont!
En á mili þess sem ég talaði við fólk og borðaði góðan mat stóð ég úti í glugga og horfði á útsýnið sem var það flottasta sem ég hef séð, reyndar hef ég aldrei farið svona hátt upp í neinni byggingu. Ég tók milljón myndir, aðallega út um gluggann eins og sést á flikkinu.
04/06/2008
Þá er lokaverkefnið búið að koma sér vel fyrir í hausnum á mér og tvær vikur eftir til að klára það!! Ég er ekki búin að koma miklu í verk en útfærslur krauma í kollinum og á endanum framkvæmi ég e-a af þeim, vonandi. Verkefnið er sem sagt að hanna plagat, bækling og boðskort fyrir tónleika að eigin vali. Við megum ráða flest öllu frá tónlist til útlits. Plagatið verður svona eins og plagöt eru (pappír á vegg væntanlega) en boðskortið og bæklingurinn mega fara í óhefbundið form sem er hægt að gera svo ótrúlega margt með. Ég gæti þessvegna saumað það ef mér sýndist svo. Annars verð ég að fara að koma mér e-ð áfram með þetta, heilinn minn kúplaði sig svo gjörsamlega út úr öllum lærdómi og skildum í páskafríinu að það tekur tíma að koma sellunum í gang aftur.
Tilhlökkun vikunnar er næsta helgi þegar við förum suðu á árshátíð EJS í veislusal á efstu hæð Turnsins nýja á Smáratorgi!!! Þessi salur á víst að vera killer flottur með fullkomnasta eldhúsi landsins. Ekki að ég ætli að fara að elda þar, læt aðra betri í faginu um það. Það vill áreiðanlega enginn frá Special K að hætti Gudfinns eða skyr boost.
Annars tók Diddi æði úti í garði og sagaði niður risa stóru runnana sem hafa ekkert verið snertir með klippum eða töng í 10 ár!!! Kominn tími til verksins að mínu mati.
03/30/2008
Skólaferðalagið er á enda og ég skemmti mér mjög vel og fræddist um margt. Ótrúlega margir viðkomustaðir á þessum stutta tíma, helstu staðir voru t.d.: Fíton auglýsingastofa, Þorri Hringsson myndlistamaður, Svansprent, Kvikmyndaskólinn, Hvíta húsið auglýsingastofa, Íslenska auglýsingastofan og Mundi design. Mér fannst mjög gaman að skoða auglýsingastofurnar og Kvikmyndaskólann var áhugavert að sjá.
Ég náði að fara í bíó með Lísu og Kidda á Vanis Point, ágætis ræma og góð skemmtun.
Heimferðin í rútunni var ótrúlega langdregin eins og sést á myndaröð sem ég setti saman.
Skólinn tekur við á morgun og vörutalning í vinnunni beint eftir skóla.
Flikk myndir frá ferðinni.
03/19/2008
Það er von á fjölgun hjá okkur í sumar, eitt stikki Border Collie hvolpur verður nýji fjölskyldumeðlimurinn ef allt fer vel í hvolpameðgöngu hjá tík bróður hans Didda. Ég hlakka mjög mikið til og við gerum hundakofa úti í garði.
Páskafríið byrjar hjá mér kl 18 á morgun, þá verð ég ekki að vinna aftur fyrr en 25. svo ég viti. Skólaferðalagið er svo eftir viku, ætla að gista hjá Sísí vinkonu og reyna að hitta nokkrar systur í leiðinni.
03/12/2008
Síðasta hálfa mánuðinn hefur ekki verið tími fyrir nokkurn skapaðan hlut, ég er búin að vera að ferðast til Reykjavíkur í einn dag og teikna fyrir Mínervubók Verkmenntaskólans nokkrar myndir. Veitir ekkert af smá pening á þessum bæ.
Á föstudaginn er ég komin í páskafrí í skólanum sem varir í 10 daga, á meðan ætla ég að vinna eins og brjálæðingur út launatímabil þessa mánaðar svo ég fái vel útborgað.
Eftir páska er skólaferðalag suður, það á að heimsækja hönnunarstofur og gera fullt skemmtilegt.
03/02/2008
Mánudagur á morgun og ný vika að hefjast. Mig langar til að hafa annan í sunnudegi á morgun. Þurfti að rjúka til vinnu í gær og það tók dýrmætan tíma frá mér sem ég ætlaði til Mínervu teikningar. Náði samt sem áður að byrja á einni mynd í dag og klára þetta í vikunni.
Grafíkin heldur áfram næstu tvær vikurnar og ég þarf að fara að spíta í lófana og skrapa af krafti til að læra tæknina við þetta. Margt hægt að gera og hættuleg efni koma oftar en ekki við sögu.
Suðurferð er á áætlun næstu helgi ef færð leifir og við ætlum að gista í Hveragerði í notalegheitunum þar.
02/26/2008
Diddi minn á afmæli í dag Ví ví og hann fær 3 pakka frá mér! Skemmtilegra að opna 3 heldur en einn. Helgin var æði, grímuballið í vinnunni var þvílíkt fjör og allir voru í svo fyndnum búningum. Ég tók í nokkra ölara og uppskar þreytu á sunnudaginn. En mánudagurinn lætur ekki bíða eftir sér frekar en vanalega og í skólann var farið og sund og vinnuna… Allt að gerast.
Ég er búin að vera algjör óhappa fugl síðustu daga, með mar á hnénu eftir limbóið í partíinu, braut svo glas í gær og steig á glerbrot sem fór inn í hælinn á mér. Ég náði því úr á endanum og í dag þegar ég var að labba úr sundi rann ég á góða hnéð og skar stikki úr puttanum á handriði sem ég náði taki á í fallinu! Alveg krambúleruð þessa dagana. En þetta batnar allt með kökunni sem ég fæ mér bita af á eftir.
Nú er grafík áfanginn byrjaður, við eigum að fá pappír á morgun. Sérpantaðan að sunnan einhvern 300 milligramma grafíkpappír. Svo þarf að panta koparplötur til að grafa í. Þetta verður mjög gaman held ég þegar allt er komið af stað.
Grímuballmyndir!!
02/19/2008
Nú er ég búin að kaupa græjuna og vona að sendingin taki ekki geðveikt langan tíma því þeir þurfa að senda þetta frá Taívan! Ég hlakka klikkað mikið til að fá þetta í hendurnar og það verður killer gaman að synda.
Í þessari viku erum við að læra á Flash, það er mjög skemmtilegt og eiginlega skemmtilegra heldur en after effects því það er svo líkt illustrator og tölvan í skólanum er ekki eins hæg eins og þegar það var kveikt á after effects.
Nú er Diddalingur á Breyðdalsvík að tölvustússast og kemur aftur á fim. Ég verð bara home alone á meðan og vinn verkefni fyrir skólann, nóg að gera í þeim efnum.